15% starfsfólks bókar sér stuðning
Starfsfólki finnst einfalt, þægilegt og öruggt að nota Velferðartorgið sitt. Það eina sem þarf að gera er að velja sér sérfræðing sem hentar, finna lausan tíma og smella á „Bóka tíma“!
Engin símtöl, engir tölvupóstar, og það er algjör óþarfi að tala við yfirmanninn um það. Velferðartorgið virkar um leið og því er komið á laggirnar, og þú stýrir notkuninni.
Þú þarft ekki að taka okkur á orðinu. Skoðaðu reynslusögur notenda okkar með því að smella hér!
Breitt úrval stuðnings á 60+ sviðum og yfir 30 tungumálum
Fjárfesting sem skilar sér – 300% ROI
Þegar starfsfólkinu þínu líður betur stendur það sig líka betur í vinnunni. Þú munt finna stóran mun – við lofum. Að meðaltali skilar fjárfesting í velferð starfsfólks sér í yfir 300% ávöxtun – og það er bara mælanlegi hlutinn. Það eitt að fá stuðning til að líða vel frá vinnuveitanda sínum er ómetanleg og einstök tilfinning.
Sérsniðinn stuðningur til langs tíma með einkunn upp á 4.9/5
Við vitum að alvöru stuðningur frá alvöru fólki sem er sérfrótt á sínu sviði er það eina sem raunverulega hjálpar fólki þegar það á í erfiðleikum.
Þess vegna höfum við frá upphafi lagt mikla áherslu á að hlúa að samfélagi sérfræðinga okkar.
Þeir eru það verðmætasta sem við eigum að, og viðskiptavinir okkar gætu ekki verið meira sammála. Starfsfólk sem nýtir sér Velferðartorg hefur gefið lausninni 4.9/5 í einkunn!
Upplýsingaöryggi og trúnaður í forgrunni
Ekkert er mikilvægara en að trúnaðar sé gætt um viðkvæmar persónuupplýsingar starfsfólksins þíns. Þess vegna dulkóðum við öll samskipti milli notenda og sérfræðinga – og geymum allar notendaupplýsingar á ólæsilegu dulkóðuðu formi á ytri netþjónum.
Enginn hefur aðgang að notendaupplýsingum nema notendurnir sjálfir.
Ólíkt mörgum öðrum keppinautum seljum við aldrei neinar upplýsingar notenda okkar til þriðja aðila.
Hvað er Velferðartorg?
Velferðartorg er sérsniðin notendagátt sem gerir fyrirtækjum kleift að veita starfsfólki sínu aðgang að stuðningi og meðferðarúrræðum hjá reyndum sérfræðingum á ótal sérsviðum.
Hvernig virkar Kara Connect?
Fyrirtækið þitt veitir starfsfólki sínu inneign til að bóka sér tíma inni í Köru Connect – þar sem ein inneign gerir manni kleift að bóka sér einn tíma. Ef starfsmaður klárar inneignirnar sínar getur hann þó haldið meðferðinni áfram á eigin kostnað eftir að inneignirnar eru fullnýttar.
Er kerfið öruggt?
Allir tímar, öll samskipti og öll gögn sem fara í gegnum Velferðartorg Köru Connect eru dulkóðuð og geymd á öruggum stað. Við höfum hlotið ISO 27001 vottun, sem þýðir að upplýsingaöryggisferli okkar uppfylla allar ströngustu kröfur um trúnað og öryggi. Enginn hefur aðgang að gögnum notenda nema notendurnir sjálfir.
Velferðartorg Köru Connect er hannað sem verkfæri til að mæta þörfum starfsfólks á hverjum tíma fyrir sig – og er afar sveigjanlegt í því skyni. Til að mynda er hægt að opna sérstök torg fyrir þjálfun, fræðslu um fjölbreytileika og jafnræði (DEI), sálfræðilegan stuðning í kjölfar áfalla eða vinnuslysa, aðstoð og umönnun í kjölfar uppsagna, fjármálafræðslu og – heilbrigði – og svo framvegis. Þannig geturðu nýtt torgið þitt í ótal mismunandi hluti.
DemoBókaðu fríkeypis kynningarfund með teyminu okkar og við sýnum þér hvernig Velferðartorgið þitt gæti litið út.
Demo