Hvað er velferðartorg?
Velferðartorg er stafrænn vettvangur sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem bjóða starfsfólki fyrirtækja upp á sína þjónustu – í þágu valdeflingar og vellíðunar vinnandi fólks.
Velferðartorg auðveldar starfsfólki fyrirtækja að finna viðeigandi sérfræðiaðstoð og panta sér tíma.
Notist þú þegar við aðra þjónustu Kara Connect getum við hjálpað þér að ná til fleiri viðskiptavina með því að gera þjónustu þín aðgengilega á velferðartorgum Kara Connect.
Mig langar að ganga til liðs við velferðartorg, hvernig ber ég mig að?
Ef þú notar þjónustu Kara Connect nú þegar:
Rekur þú nú þegar eigin klíník eða meðferðarþjónustu í gegnum Kara Connect? Þá hefur þú búið til prófíl og sett upp eigin notendareikning.
Eigi þetta við um þig munt þú fá þær upplýsingar sem þú þarft í tölvupósti frá Kara Connect-teyminu, ef samstarfsaðili okkar eða fyrirtæki óskar eftir þinni þjónustu og sérþekkingu.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða fram þjónustu þína á velferðartorgi geturðu þú einfaldlega fyllt út þetta eyðublað. Þegar samstarfsaðili okkar eða fyrirtæki, sem notast við velferðartorgin, óskar eftir þjónustu á þínu sérsviði, verður haft samband við þig strax til að tengja viðeigandi torgi.
Ef hefur ekki notað Kara Connect áður:
Þú getur búið til notendareikning hér. Þegar hann er tilbúinn geturðu útfyllt og sent eyðublaðið hér að ofan.
Þegar eyðublaðið berst okkur mun starfsmaður úr okkar röðum fara yfir umsókn þína og þú færð stöðu á biðlista. Um leið og samstarfsaðili okkar eða fyrirtæki óskar eftir þinni þjónustu og sérþekkingu, verður haft samband við þig.
Þarf ég að vera áskrifandi að vinnusvæði Kara Connect til að taka þátt í velferðartorgi?
Já. Við þróuðum velferðartorgin í þeim tilgangi að koma á sambandi milli þín og starfsfólks þeirra fyrirtækja sem vilja notfæra sér þína þjónustu. Við höfum fjárfest í verkfærum sem auðvelda þér að verða hluti af velferðartorgunum.
Sértu nú þegar áskrifandi að vinnusvæði Kara Connect, láttu vita hér ef þú vilt ganga til liðs við velferðartorgin.
Ef þú hefur ekki notað Kara Connect áður, getur þú gerst áskrifandi að hér að leið sem mætir þínum þörfum. Þegar þú ert komin/nn með eigið vinnusvæði, þá fyllir þú út þetta eyðublað.
Kostar eitthvað aukalega fyrir mig að bjóða fram þjónustu mína á velferðartorgum Kara Connect?
Nei. Ef þú ert áskrifandi að vinnusvæði Kara Connect munum við ekki rukka þig fyrir meira en áskriftina.
Þegar ég skila inn eyðublaðinu, verður mér sjálfkrafa bætt inn á velferðartorg? Hvernig virkar það?
Ef þú ert áskrifandi að Kara Connect vinnusvæði fyrir fagfólk og þú hefur þegar fyllt út þetta form hér munum við fara yfir umsókn þína og þú færð stöðu á biðlista.
Um leið og samstarfsaðili okkar eða fyrirtæki óskar eftir þinni þjónustu og sérþekkingu, verður haft samband við þig og þér boðið að gerast þátttakandi á viðeigandi velferðartorgi.
Þá mun þjónustuteymi okkar senda þér efni sem leiðbeinir þér í gegnum ferlið.
Leiðbeiningarnar:
Ef starfsmaðurinn, skjólstæðingur þinn, verður uppiskroppa með inneignir en vill halda áfram að þiggja þína þjónustu, má koma sér saman um aðrar greiðsluleiðir, eins og venjulega í beinum viðskiptum. Þú gætir notast við Kara Pay í þessu samhengi, kreditkort, reiðufé eða aðrar greiðsluaðferðir.
Hvernig rukka ég fyrir þá tíma sem ég hef lokið?
Fyrirkomulag velferðartorganna er þannig að vinnuveitendur veita starfsfólki sínu ákveðinn fjölda niðurgreiddra tíma, kostaða inneign. (Þetta þýðir að ákveðinn fjöldi tíma er niðurgreiddur af fyrirtækinu þeirra).
Þú sendir Kara Connect reikninga þína fyrir starfsemi á velferðartorgi með einstaklingum og stökum tímum hvers mánaðar og við munum greiða þér fyrir þá (nema þjónusturáðgjafi Kara Connect taki annað fram).
Ef skjólstæðingur mætir ekki í tímann sinn, borgar Kara Connect fyrir hann?
Já, einn besti kostur þess að taka þátt í velferðartorgunum okkar er, að ef pantaður hefur verið tími og skjólstæðingurinn lætur ekki sjá sig, þá greiðum við þér að fullu fyrir þann tíma. Vinsamlegast athugið að þetta á aðeins við um tíma sem hafa verið bókaðir með inneign. Allar aðrar bókanir eru þín eigin ábyrgð.
Ætti ég að bjóða upp á sérstakt verð fyrir tíma sem eru bókaðar í gegnum velferðarmiðstöð?
Þú þarft þess ekki ef þitt verð er á tilskildu verðbili.
En hafðu í huga að meðan á umsókn þinni stendur (eftir að hafa útfyllt og sent inn eyðublaðið) munum við endurskoða meðalverðið þitt. Ef þú ert yfir mörkunum og vilt samt taka þátt á velferðartorgum Kara Connect, munum við biðja þig um að halda verðlagningu innan viðeigandi marka.
Ég er með fleiri spurningar varðandi velferðartorgin. Hvar get ég fundið frekari upplýsingar?
Frekari upplýsingar má nálgast í þessari hjálparmiðstöð. Að sjálfsögðu geturðu alltaf sent okkur tölvupóst á support@karaconnect.com ef þú finnur ekki svör við spurningum þínum.