Afhverju ættir þú að verða hluti af Köru Connect?
Hvað aðgreinir okkur frá öðrum?
Við erum í samstarfi með hundruðum sérfræðinga í mismunandi sérgreinum. Við höfum byggt upp náin tengsl við sérfræðingana okkar og þykir okkur mjög annt um þeirra velgengni og að tengja fólk sem hefur þörf á við þeirra sérfræðiþekkingu.
Eftir að þessum fundum er lokið getur þú haldið áfram að vinna með skjólstæðingunum þínum. Ólíkt öðrum kerfum viljum við tryggja að starfsmenn fái réttann stuðning og geti haldið samskiptum áfram við sinn sérfræðing.
Þú hefur fulla stjórn á þínu dagatali
Við útvegum tækin til að stjórna þinni áætlun og til að eiga samskipti við skjólstæðinga. Okkar markmið er að styðja við fagfólk við uppbyggingu á sínu tengslaneti með því að tengja það við nýja skjólstæðinga.
Allir sem tengjast þér munu verða þínir skjólstæðingar, eini munurinn er sá að fyrirtækið þeirra greiðir kostnað tímans.
Við leggjum áherslu á að starfsmenn fái réttann stuðning fyrir sig og hafi umsjón með sínum samskiptum við sinn sérfræðing.
Þú stillir inn þín verð á þinni þjónustu
Við tryggjum að þú fáir greitt það verð sem þú setur á þína þjónustu. Ef þitt verð er fyrir meðalverði, munum við mögulega þurfa að ræða það og komast að samkomulagi.
Við erum stolt af því að byggja upp heiðarleg og sterk tengsl við sérfræðingana okkar.
Við tengjum þína sérfræðiþekkingu og reynslu
Við vinnum með mörgum fyrirtækjum og starfsmönnum sem leita að sérfræðiaðstoð s.s. Fjármálaráðgjöf, næringarráðgjöf, sálfræðiaðstoð og fleira. Okkar viðskiptavinir eru með mismunandi bakgrunn og tala mismunandi tungumál
Við munum svo tengja þig við þau fyrirtæki sem þurfa á þinni sérfræðiþekkingu að halda.
Við viljum að upplifun fyrir bæði starfsmenn og sérfræðinga sé góð og leiði til bættrar vellíðunar hjá starfsfólki.
Við erum þakklát fyrir okkar samstarf með þér!